Persónuverndaryfirlýsing Klappsins

Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. (hér eftir ASHB eða félagið), Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík, er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við notkun á KLAPPINU.

KLAPP er rafrænt greiðslukerfi sem veitir aðgang að strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu. Viðskiptavinir ASHB geta valið um 5 greiðslumiðla til að nota í KLAPP: Snertilausar greiðslur með greiðslukortum, snjallkort, KLAPP lyklakippur, smáforrit og hefðbundna pappírsmiða. Notendum er einnig kleift að sýsla með og hafa yfirsýn yfir sín mál með aðgangi að mínum síðum KLAPPSINS.

Þessi persónuverndaryfirlýsing gildir um alla þjónustu KLAPPSINS. Ítarlegri upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga hjá ASHB má finna í persónuverndaryfirlýsingu félagsins.


KLAPPIÐ smáforrit

KLAPPIÐ smáforrit er lausn þar sem viðskiptavinir ASHB geta keypt fargjöld, haldið utan um fargjöld sín, sent miða sín á milli og skannað/stimplað sig inn í strætó.


KLAPPIÐ mínar síður

KLAPPIÐ – mínar síður gerir viðskiptavinum kleift að fá enn meira út úr þjónustu ASHB. Með aðgangi að mínum síðum geta notendur keypt stök fargjöld og tímabilskort, fyllt á snjallkort sín, fyllt á KLAPP lyklakippur sínar, keypt og haldið utan um inneignir í KLAPP veski, nýtt sér afsláttarkjör eigi þeir rétt á því, sótt greiðslukvittanir, séð stöðuna á greiðslumiðlum sínum og skoðað yfirlit yfir notkun sína og viðskiptasögu. Með aðgangi að mínum síðum geta notendur einnig sent erindi í formi fyrirspurna og ábendinga sem tekin eru til afgreiðslu af þjónustufulltrúum félagsins.


Hvaða persónuupplýsingar er verið að vinna?

ASHB  er nauðsynlegt að vinna með ýmsar persónuupplýsingar þínar í tengslum við notkun KLAPPSINS. Við söfnum persónuupplýsingum sem þú veitir beint, upplýsingum um hvernig þú notar þjónustu okkar og eftir atvikum upplýsingum frá þriðju aðilum í tengslum við sérstök afsláttarkjör af fargjöldum.

Þegar þú tekur smáforritið í notkun hefur þú val á milli nafnlausrar innskráningar eða að stofna aðgang með tengingu við símanúmer. Við skráningu á mínar síður þarftu ávallt að gefa upp símanúmer eða netfang.

Við kaup á vörum og þjónustu þarftu að skrá greiðslukortanúmer. Þá hefur þú val um að vista greiðslukortaupplýsingar þínar fyrir hraðari kaup. Í þeim tilvikum er kortanúmeri þínu skipt út fyrir svokallað sýndarnúmer (e. Token) en engin greiðslukortanúmer vistast í kerfum ASHB. Til að þú áttir þig á hvaða greiðslukort eru skráð hverju sinni birtast fyrstu sex og síðustu fjórar tölur greiðslukortsins ásamt gildistíma í KLAPPINU.

ASHB býður ýmsum hópum viðskiptavina sinna upp á sérstök afsláttarkjör, þ.m.t. örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum, námsmönnum og starfsmönnum fyrirtækja sem gert hafa samgöngusamning við félagið.  Eigir þú rétt á slíkum afsláttarkjörum þá munum við einnig vinna með þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að geta veitt þér þann afslátt. Slíkar upplýsingar eru þó eingöngu aðgengilegar félaginu hafir þú veitt samþykki fyrir miðlun þeirra hjá viðkomandi samstarfsaðila ASHB, s.s. vinnuveitanda þínum, skólanum þínum eða Tryggingastofnun Ríkisins. ASHB fær eingöngu upplýsingar um hvort þú eigir rétt á afslætti eður ei. Þá sækir ASHB upplýsingar um lögheimilissveitarfélag þeirra sem nýta sér námsmannaafslátt í Þjóðskrá, vegna samninga við sveitarfélög um veitingu slíks afsláttar. Öðrum upplýsingum er ekki aflað frá samstarfsaðilum.

Við kaup á fargjaldi eru vistaðar upplýsingar hjá ASHB um dagsetningu og tímasetningu viðskipta, tegund fargjalds og eftir atvikum afsláttarkjör, upphæð greiðslu og staðfestingu á greiðslu frá færsluhirðum. Í gegnum mínar síður hefur þú aðgang að yfirliti yfir eigin viðskipti og stöðu fargjalda. Auk þess að geta nálgast yfirlit yfir eigin viðskipti stendur þér til boða að fá greiðslukvittun á netfang þitt. Í þeim tilvikum sem þú nýtir þér þann möguleika þarftu að skrá upplýsingar um netfangið sem vistast hjá ASHB.

Þegar þú sendir okkur fyrirspurn, ábendingu, kvörtun eða annars konar erindi í gegnum mínar síður þá stofnast sjálfkrafa mál undir þér í viðskiptamannakerfi KLAPPSINS sem tekið er til afgreiðslu af þjónustufulltrúa félagsins.

Að öðru leyti en að framan greinir vinnur ASHB almennar upplýsingar um notkun þína á þjónustunni. Þannig eru aðgerðir þínar bæði skráðar og vistaðar með dagsetningu og tímasetningu, þ.m.t. kaup, virkjun, skönnun og áframsending fargjalda. Við skönnun fargjalda og byrðingu farþega eru jafnframt vistaðar upplýsingar um á hvaða stoppistöð þjónustan er nýtt.

Að auki kunnum við að vinna með aðrar upplýsingar um þig sem þú kýst að gefa upp í smáforriti, á mínum síðum eða í samskiptum við ASHB, s.s. fullt nafn, kennitölu, símanúmer, netfang og heimilisfang.

ASHB viðhefur eftirlit með réttri greiðslu fargjalda og hefur á grundvelli laga og reglna heimild til að beita fargjaldaálagi til samræmis við það og vinna þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að framfylgja þeim reglum. Í þágu framangreinds er unnið með upplýsingar um viðskiptavini, þ.e. nafn, kennitölu, auðkenni farmiðils og upplýsingar um ástæðu þess að fargjaldaálagi er beitt.


Hver er tilgangur vinnslunnar?

Tilgangur vinnslunnar er fyrst og fremst að veita aðgang að vörum og þjónustu sem byggir á samningi milli þín og ASHB. Eins eru persónuupplýsingar unnar í þeim tilgangi að bæta vöruframboð og þjónustu við viðskiptavini. Þá er unnið með upplýsingar til að tryggja að notendur geti notið þeirra afsláttarkjara sem þeir eiga rétt á og að sinna eftirliti með réttri greiðslu fargjalda.

ASHB áskilur sér rétt til þess að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir tengdar notkun á þjónustunni.


Vinnsluheimild

Vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem nauðsynleg er vegna notkunar á KLAPPINU byggir á samningi við þig sem notanda, en við þurfum vissar upplýsingar til að þú getir nýtt þér KLAPPIÐ.

Þá eru upplýsingar um notkun þína á þjónustunni einnig nýttar til þess að betrumbæta og þróa þjónustu ASHB og eru það lögmætir hagsmunir félagsins að geta bætt þjónustu sína við þig.

Í þeim tilvikum er notendur vilja nýta sérstök afsláttarkjör á borð við örorkuafslátt eða námsmannaafslátt þá öflum við upplýsinga frá samstarfsaðilum okkar hafir þú veitt þeim samþykki fyrir slíkri miðlun. Öflun upplýsinga um lögheimilissveitarfélag námsmanna sem nýta sér afsláttarkjör vegna samninga við sveitarfélög um slíkan afslátt byggir á lögmætum hagsmunum ASHB og er forsenda þess að félagið geti boðið námsmönnum afsláttarkjör.

Persónuupplýsingar sem unnar eru í tengslum við eftirlit með greiðslu fargjalda og ákvarðana um fargjaldaálag byggir ASHB á heimild í lögum um farþegaflutninga og reglum sem settar eru á grundvelli þeirra.


Miðlun persónuupplýsinga

Persónuupplýsingum um þig kann að vera miðlað til utanaðkomandi aðila, svo sem:

  • til samstarfsaðila ASHB, þ.e. Tryggingastofnunar Ríkisins, skólastofnana eða fyrirtækja sem gert hafa samgöngusamning við félagið, sé það nauðsynlegt til að þú getir nýtt þér þau afsláttarkjör sem bjóðast viðskiptavinum ASHB,
  • til Samgöngustofu ef ákvarðanir ASHB um fargjaldaálag eru kærðar,
  • til fyrirtækja sem vinna með ASHB að framfylgni innheimtu. Komi til þessa undirgangast þessir aðilar trúnaðarskyldur vegna þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru.

Öryggi persónuupplýsinga

Við þróun og rekstur kerfisins hefur verið gripið til viðeigandi ráðstafana til að tryggja að þau gögn komist ekki í hendur óviðkomandi, þeim verði ekki breytt, þau ekki eyðilögð eða að þau tapist. Þannig eru öll samskipti milli lausna og gagnagrunna dulkóðuð.

ASHB safnar ekki greiðslukortaupplýsingum og þannig er öryggi tryggt í kortaviðskiptum. Við skráningu á greiðslukortum verður til sýndarnúmer (e. Token) sem notað er í stað kortanúmers þegar greiðsla er framkvæmd. Raunverulegt kortanúmer er því aldrei notað í KLAPPINU sem eykur líkur á öryggi.

Öll samskipti milli KLAPPSINS og gagnagrunna eru dulkóðuð. Aðgangur að gagnagrunnum verður takmarkaður og rekjanlegur.

ASHB mun hér eftir sem hingað til beita viðeigandi ráðstöfunum til þess að vernda gögn sem unnið er með í tengslum við KLAPPIÐ og áframhaldandi þróun þess.


Þín réttindi

Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þau gögn sem vistuð eru vegna notkunar á KLAPPINU, ásamt því að fá afhent eintak af slíkum gögnum.

Þú átt rétt á að fara fram á að rangar persónuupplýsingar séu leiðréttar og að upplýsingum sé eytt, eftir því sem lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn heimila. Þá áttu einnig rétt á því að andmæla vinnslu persónuupplýsinga og óska eftir því að vinnsla þeirra sé takmörkuð. Þá áttu rétt á því að fara fram á að fá persónuupplýsingar þínar afhentar á tölvutæku formi, eða þær verði fluttar beint til þriðja aðila.

Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa ASHB með tölvupósti á netfangið personuvernd@ashb.is óskir þú eftir því að nýta einhver af réttindum þínum, viljir frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga eða til að koma á framfæri ábendingum sem varða hana.

Teljir þú að vinnsla persónuupplýsinga sé ekki í samræmi við lög sem um hana gilda getur þú sent erindi til Persónuverndar.