Borgaðu snertilaust um borð í Strætó – Einfalt, fljótlegt og þægilegt.
Snertilausar greiðslur eru einstaklega hentugar þegar viðskiptavinir vilja nýta sér Kapp greiðsluþak en þá er aldrei greitt meira en fyrir 3 ferðir á dag eða 9 ferðir á viku með fullorðins gjaldi. Einungis þarf að muna að nota alltaf sama greiðslumáta; sama greiðslukortið eða sama síma/tæki.
Viðskiptavinir sem greiða með tímabilskorti/miða í appinu skulu vera búnir að opna QR kóðann áður en gengið er um borð í vagninn. Þegar QR kóðinn í appinu er opnaður læsist skjár símans. Einstakir Android símar virðast ekki læsa skjánum og getur þá veskið tekið yfir og greitt snertilaust. Verið er að vinna að lausn á þessu en á meðan geta viðskiptavinir með Android síma slökkt á NFC eða fært tímabilskortið sitt á Klapp kort eða Klapp lyklakippu.
Við minnum einnig viðskiptavini á að uppfæra appið reglulega til að tryggja að nýjustu uppfærslur séu til staðar.
Við hvetjum fólk til að hafa samband við straeto@straeto.is hafi það einhverjar ábendingar sem það vill koma á framfæri eða nýta sér ábendingakerfi Strætó.
Hægt er að biðja um endurgreiðslu ef kort var skuldfært þrátt fyrir virkt tímabilskort/miða með því að senda á endurgreidslur@straeto.is
Yfirlit yfir fjölda ferða
Hægt er að sjá yfirlit yfir fjölda ferða sem keyptar hafa verið með greiðslukorti með því að smella hér. Einnig er hægt að skrá kortanúmerið inn á Mínar síður og sjá yfirlit þar.
Algengar spurningar